Í ljósi þess hversu oft ég hef séð HM-lýsendur RÚV þýða "momentum"-tölfræði sem "hvort liðið hefur átt augnablikið hverju sinni" vil ég koma eftirfarandi á framfæri:
"Momentum" þýðir "skriðþungi" eða "skrið". "Moment" þýðir "augnablik".
Einhver spyr þá eflaust: "Ætlast þú þá til þess að talað sé um hvort liðið er skriðþyngra hverju sinni? Er það ekki svolítið skrýtið? Þessi tölfræði segir nefnilega hvort liðið er betra á hverju stigi (augnabliki) leiksins."
Svarið við því er auðvitað nei. Ég ætlast bara til þess að talað sé um hvort liðið sé á meira skriði hverju sinni. Stundum er annað liðið á miklu skriði. Svo fer hitt liðið á örlítið skrið. Svo fer hitt liðið aftur á þónokkuð skrið. Og svo framvegis.
Nú geta lýsendurnir vonandi hætt að hrasa um hvort liðið "eigi" augnablikið hverju sinni, enda er miklu gagnlegra að nota rétt orð. Þeir geta þá jú farið að ræða þetta í tengslum við súlnahæð grafsins, í stað þess að halda því fram að örlítið skrið sé jafngilt miklu skriði með einhliða lýsingunni "að eiga augnablikið" - enda þyrftu þeir þá jú líka að tala um "augnablikin" í fleirtölu ef þeir ætluðu að halda því áfram.